|
Teiknhönnun (e. icon design) er eitt forgangsatriðið í stúdíóinu okkar. Síðastliðin ár hafa hönnuðir okkar hannað mikinn fjölda teikna. Kannski meira en þeir ættu að gera. Við höfum sameinað verkfræðilega- og listræna nálgun, við byrjum teiknhönnun með mikilli skipulagningu. Það er ástæðan fyrir því að teiknin okkar eru ekki bara fallegar myndir. Þeim er gædd almenn skynsemi og þær eru hannaðar með ást í sérhverjum punkti. |
![]() ![]() Tíminn þegar útlits- og viðmótshönnun varð varhluta er liðinn. Leiðandi hugbúnaðarsérfræðingar fyrirskipa tísku hreinna, einfaldra og viðkunnanlegra viðmóta, þar sem smáatriðin eru látin skipta máli. Stúdíóið okkar fylgir þessari stefnu og leggur til þjónustu við skipulagningu og grafíska hönnun á viðmótum forrita, vefforrita og raftækja sem eru nútímaleg og aðlaðandi. |
|||
![]() ![]() Það eru engar ýkjur að segja að stúdíóið okkar hefur næga reynslu og nægar auðlindir til að vinna hverslags vefverkefni, allt frá tæknilegri skipulagningu í upphafi verksins og fram að opnun kampavínsflöskunnar að því loknu. Í vefhönnun eru allskyns smáatriði sem er varla hægt að tíunda í einni efnisgrein, þannig að við komum okkur að kjarna málsins: ef þig vantar vefþróunarþjónustu, hafðu samband og við segjum þér hvernig heimurinn snýr. |
![]() Lógó og ímynd fyrirtækja er heill iðnaður í grafískri hönnun út af fyrir sig sem er best að forðast án reynslu af prentun, samsetningu, og sérstaklega án smekkvísis. Við teljum okkur enga gúrúa, en við drögum heldur ekki úr okkur. Við vitum sitt lítið um grafíska hönnun. Nóg til að hanna einstakt lógó sem enginn ætti að skammast sín fyrir. Við getum fundið upp og hannað allt sem er nauðsynlegt fyrir ímynd fyrirtækis og látum skynsamlega handbók um notkun fylgja. |
|||
![]() ![]() Stafrænu listamennirnir okkar eru ávallt til taks. Þeir bíða eftir að þú krefjist fallegra mynda. Þeir vinna hratt og sofa nánast aldrei. |
||||